Kraftajötnahópurinn er fyrir karlmenn sem vilja styrkja sig. Hentar bæði byrjendum sem lengra komnum sem vilja auka líkamlegan styrk og orku.
Nýtt námskeið hefst 1. september 2020. Æfingar 2x í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10:00 – 10:50.
Með hækkandi aldri fara vöðvarnir að rýrna og hættan á minnkandi hreyfigetu eykst. Styrktarþjálfun hefur löngu sannað gildi sitt í heilsueflingu og sem meðferðarform við stoðkerfisvanda. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að styrktarþjálfun á efri árum geti viðhaldið og jafnvel aukið vöðvamassa. Heilsueflandi áhrif styrktarþjálfunar eru því mikil. Það er aldrei of seint að byrja.
- Styrktarþjálfun
- Mælingar
- Ráðgjöf
- Fræðsla
- Félagsskapur
Staðsetning: Ármúla 40 sem er aðstaða Yama heilsurækt
Kennari Ásdís Halldórsdóttir íþróttafræðingur.
Verð 53.000 kr. fyrir 12 vikur. Skilmálar hér.
Skráðu þig hér í hópinn Kraftajötnar eða sendu okkur póst á netfangið soltunheima@soltunheima.is eða hringdu í síma 5631400.