Við komum heim til þín og í upphafi er framkvæmd sérhönnuð greining á líkamlegri getu og færni í daglegu lífi. Út frá þeim breytum kemur sérsniðið æfingakerfi frá DigiRehab sem er gagngert til að styrkja líkamlega getu. Eftir 6 vikur er gert endurmat á heilsu og færni og æfingaplanið uppfært.
Sérhannaðar æfingar af dönskum sjúkraþjálfurum

Æfingarnar eru flestar gerðar til að styrkja skjólstæðingana til þess að þeir geti notið lífsins betur og sinnt daglegum athöfnum með minni aðstoð annarra. Þær eru sérhannaðar af dönskum sjúkraþjálfurum og margir hafa náð undraverðum árangri í getu.

Til að tilætlaður árangur náist er lágmarksæfingatími 3 mánuðir en eftir þann tíma er hægt að halda áfram í áskrift með aðstoð eða kaupa áskrift að kerfinu og gera æfingarnar sjálfur enda er regluleg hreyfing nauðsynleg öllum.
- Við komum til þín – Heimaæfingar tvisvar í viku með aðstoð leiðbeinanda
- Sérsniðið æfingakerfi með styrktaræfingum
- Byltingarkennd velferðartækni – í samstarfi við DigiRehab í Danmörku
- 3 af hverjum 4 ná líkamlegum framförum og verða meira sjálfbjarga
Sveitarfélagið Álaborg í Danmörku mælir með notkun DigiRehab enda hefur náðst eftirtektarverður árangur í bættri hreyfigetu aldraðra sem hefur leitt til þess að margir verða sjálfstæðari á eigin heimili og hafa minni þörf fyrir heimaþjónustu.

Leiðbeinandinn hvetur skjólstæðinginn til að stunda hreyfinguna samviskusamlega og skjólstæðingurinn fær innlit sem dregur úr einangrun.
Það er aldrei of seint að lifa lífinu og Sóltún Heimahreyfing getur komið þér aftur af stað. Ef þú vilt vita meira um Sóltún Heimahreyfingu skaltu kíkja á nokkur myndbönd, lesa það sem skjólstæðingar okkar hafa um þjónustuna að segja eða rennt yfir spurt og svarað. Þú getur líka haft samband í síma 563 1400 eða netfangið soltunheima@soltunheima.is.